Söguvefur Nýja bókafélagsins
Söguvefur NB er sniðinn að sögunámi á framhaldsskólastigi en er um leið almennur upplýsingavefur um Íslands- og mannkynssögu.
Söguvefurinn er unninn með hliðsjón af kennslubókum Nýja bókafélagsins, Íslands- og mannkynssögu NB I-II og flokknum Smárit NB um sagnfræði. Er ætlunin að vefurinn og bækurnar vinni saman við sögunámið og myndi eina heild í sögukennslu á framhaldsskólastigi.
Á Söguvefnum er að finna verkefni, bókalista, upplýsingar um sögulegar kvikmyndir, lista ýmiss konar um valdatíma áhrifafólks, stuttar ævisögur, uppflettiskrá, stórt myndasafn, safn korta, söguannál og safn tengla þar sem vísað er á aðra vefi sem geyma upplýsingar og fróðleik sem gagnast geta áhugamönnum í sögu og við sögunám. Vefurinn er enn í vinnslu og mun þegar fram líða stundir stækka og dafna.
|