Sigmar Bent Hauksson blaðamaður, f. 3.10. 1950 í Reykjavík. Foreldrar: Svanborg Jónsdóttir húsmóðir, f. 10.10. 1920 á Víðivöllum í Hrófbergshreppi, Strand., d. 31.12. 2002, og Haukur Bent Guðjónsson vélsmiður, f. 5.1. 1920 í Reykjavík, d. 28.1. 1993. Systkin: Guðrún Björk hárgreiðslumeistari, f. 10.5. 1953, og Jón Víðir kvikmyndatökumaður, f. 17.3. 1963. Maki: Helga Thorberg leikari, f. 7.7. 1950. Foreldrar maka: Guðfinna Sigurðardóttir Breiðfjörð hárgreiðslumeistari, f. 12.8. 1921, d. 10.11. 1985, og Magnús Magnússon Thorberg heildsali, f. 12.7. 1917, d. 2.10. 1991. Barn: Haukur Bent, f. 20.7. 1982. Stjúpsonur: Halldór Helgason Laxdal verslunarmaður, f. 15.12. 1969. Fyrri maki 1: Eva Linea Hauksson, f. Janson, félagsráðgjafi, f. 14.3. 1949. Barn: Guðjón Bent nemi, f. 25.8. 1973.
Menntun: Nám í blaðamennsku við Nordiska Folkhögskolan í Kungälv í Svíþjóð 1968-1969. Menntaskólanám við Ljungskile Gymnasium 1970-1972. Nám í þjóðfélags-, sálar- og félagsmannfræði við Háskólann í Gautaborg 1972-1976. 30 tonna skipstjórnarréttindi og 1000 hestafla vélstjóraréttindi. Próf í froskköfun. Nám í skóla Sænska ríkisútvarpsins og -sjónvarpsins 1974. Starfsferill: Starfsmaður æskulýðsráðs 1969. Dagskrárgerðarmaður við RÚV-Hljóðvarp 1970-1976. Dagskrárgerðarmaður í hlutastarfi við Sænska ríkisútvarpið og -sjónvarpið 1973-1976. Dagskrárgerðarmaður við RÚV-Hljóðvarp 1976-1986 og við RÚV-Sjónvarp frá 1987. Fararstjóri erlendis frá 1975. Dálkahöfundur á Vísi, síðar DV 1979-1991. Hefur rekið eigið fyrirtæki, Miðlun og menningu, frá 1986. Skotveiðimaður, hefur fjallað um það efni í fjölmiðlum og víðar. Áhugamaður um léttvín. Önnur störf: Hefur setið í stjórn Listahátíðar og í nefnd um Nordsat á vegum menntamálaráðuneytisins. Átti sæti í fulltrúaráði Framsóknarflokksins í Reykjavík og í ýmsum nefndum á vegum flokksins. Hefur starfað fyrir kaþólska söfnuðinn í Reykjavík. Varaformaður Skotveiðifélags Íslands 1994-1996, formaður félagsins frá 1996. Varaformaður Asthma- og ofnæmisfélagsins frá 2000. Stjórnarmaður í SÍBS frá 2001. Verkefnisstjóri verkefnisins Heilsuborgin Reykjavík (Spa City Reykjavik) frá 2000. Sérfræðistörf um heilsutengda ferðaþjónustu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, Byggðastofnun og aðrar opinberar stofnanir. Hefur átt sæti í ýmsum nefndum fyrir umhverfisráðuneytið, er fjallað hafa um veiðar og vopn. Í stjórn Sambands norrænna skotveiðifélaga. Í stjórn ESPA, European Spa Association, frá 1999. Fulltrúi ESPA varðandi markaðsstörf utan Evrópu. Hefur stjórnað gerð myndbanda um ýmsa málaflokka. Ritstörf: Icelandic Seafood „Chef Chose“ 1984. Á matarslóðum, 1986. Flug og bíll, Luxemborg, ásamt Helgu Thorberg, 1989. Sælgæti úr sjó og vötnum, 1991.
|