Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, f. 3.10. 1949 í Reykjavík. Foreldrar: Málfríður Guðný Gísladóttir húsmóðir, f. 18.10. 1911 í Krossgerði í Berufirði, d. 22.4. 1996, og Gunnar Jóhannesson póstfulltrúi, f. 20.7. 1905 í Undirtúni í Helgafellssveit, Snæf., d. 26.1. 1990. Systkin: Gísli, prófessor í sagnfræði, f. 19.3. 1938, Vilborg póstútibússtjóri, f. 6.4. 1941, Guðfinna hjúkrunarfræðingur, f. 31.12. 1943, Skarphéðinn framkvæmdastjóri, f. 17.9. 1946, Guðbjörg hjúkrunarfræðingur 4.5. 1948 og Þóra Guðný skrifstofumaður, 7.7. 1954. Maki: Sigþrúður Sigurðardóttir móttökuritari, f. 9.10. 1952. Foreldrar maka: Helga Þorkelsdóttir húsmóðir, f. 24.12. 1923 og Sigurður Björgvin Guðbrandsson afgreiðslumaður, f. 3.8. 1923. Börn: Gunnar guðfræðingur, f. 28.5. 1977, og Elín Eir þjónustufulltrúi, f. 4.5. 1979. Stjúpdóttir: Erla Helga Sveinbjörnsdóttir kennari, f. 29.12. 1971. Fyrri maki 1: Magnea Móberg Jónsdóttir húsmóðir, f. 1.11. 1949. Börn: Sigrún nemi, f. 8.11. 1970 og Lilja Guðný kennari, f. 9.10. 1972.
Menntun: Mjólkurfræðingur frá Dalum Mejeriskole í Óðinsvéum í Danmörku 1971. Starferill: Mjólkurfræðingur hjá Højby mejeri í Danmörku 1971 og hjá Mjólkurbúi Flóamanna 1972-1973. Mjólkurbústjóri hjá Mjólkursamlaginu í Neskaupstað 1974. Ostameistari hjá Mjólkursamlagi Borgfirðinga í Borgarnesi 1975-1980. Útgáfustjóri hjá Verðlagsstofnun 1980-1990. Formaður og/eða framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna frá 1990. Önnur störf: Formaður Starfsmannafélags Mjólkurbús Flóamanna 1973. Ýmis trúnaðarstörf fyrir Mjólkurfræðingafélag Íslands 1973-1980. Í stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana 1984-1990. Í ýmsum nefndum á vegum SFR og BSRB, þar af í samninganefnd 1984-1990 og formaður útgáfu- og útbreiðslunefndar BSRB 1988-1990. Ýmis trúnaðarstörf fyrir Alþýðubandalagið til 1993. Formaður Neytendafélags Borgarfjarðar 1978-1980. Í stjórn Neytendasamtakanna 1978-1996 og frá 1998. Formaður Neytendasamtakanna 1984-1996 og frá 1998. Í stjórn norræna umhverfismerkisráðsins á Íslandi frá 1991. Í auglýsinganefnd samkeppnisráðs frá 1993. Í ráðgjafarnefnd um lífræna landbúnaðarframleiðslu frá 1996. Í stjórn Vottunarstofunnar Túns (vottun á lífrænum vörum) frá 1996. Í starfshópi um stefnumörkun í neytendamálum 1998-1999. Í norrænu neytendanefndinni frá 1993, formaður 1994 og 1999. Fulltrúi EFTA í ANEC (samstarfsvettvangur neytendasamtaka á EES-svæðinu í staðlamálum) frá 1999. Í ýmsum öðrum norrænum og evrópskum stjórnum, nefndum og ráðum um neytendamál. Ritstörf: Ritstjóri Strokkhljóðsins, blaðs Mjólkurfræðingafélags Íslands 1973-1974 og 1978-1980. Ritstjóri Neytendablaðsins frá 1995. Ýmsar greinar í blöð og tímarit.
|