Bæta við glósu Skoða glósur

Verk Halldórs Laxness

Með orðstöðulykli verka Halldórs Laxness má leita í öllum verkum Laxness að hvaða orðmyndum eða orðum sem er og sjá í hvaða bókum þau koma fyrir. Veitir ómetanlegan aðgang að verkum nóbelskáldsins.

Verk Halldórs Laxness hafa að geyma textann úr fjórtán verkum Halldórs Laxness en þau eru: Atómstöðin, Barn náttúrunnar, Brekkukotsannáll, Gerpla, Guðsgjafaþula, Heimsljós, Íslandsklukkan, Kristnihald undir Jökli, Paradísarheimt, Salka Valka, Sjálfsætt fólk, Smásögur, Undir Helgahnúk og Vefarinn mikli frá Kasmír.

Orðstöðulykillinn gerir notendum kleift að fletta upp öllum þeim orðum sem koma fyrir í bókunum og sjá í hvaða samhengi hvert þeirra birtist. Hægt er að leita eftir orðstofni eða eftir öllum myndum orðsins. Ef slegið er inn orðið „fótur“ í „öllum myndum“ birtist t.d. listi yfir það hvar það orð kemur fyrir í hvers kyns útgáfu í bókunum (fo-o-ótinn, fót, fóta, fótanna, fótarins, fótinn, fóts osfrv.). Þegar smellt er á dæmin sést hvar orðið birtist í öllum þessum myndum í verkunum. Hægt er að velja um hvort slegið er inn upphaf orðs (Byrjar á), innan úr orði (inniheldur) eða ending (endar á).

Orðin eru greind í orðflokka, nafnorð í kyn, og allar beygingarmyndir hvers orðs hafa verið færðar undir eina uppflettimynd. Starfsmenn Orðabókar Háskóla Íslands önnuðust þá miklu vinnu.

Þar sem mismunandi ritháttur kemur fyrir í textanum fær hver ritháttur ævinlega sína uppflettimynd, en dæmunum er yfirleitt öllum vísað undir eina uppflettimyndina. (Sjá t.d. enguaðsíður sem kemur fyrir sem aunguaðsíður, aungvuaðsíður og einguaðsíður). Þannig á alltaf að vera auðvelt að finna dæmin, eftir hvaða ritmynd sem leitað er.

Unnið hefur verið að lyklinum um langt árabil, fyrst hjá Vöku-Helgafelli, síðar Eddu - útgáfu. Verkin voru skönnuð inn og textinn búinn til frekari úrvinnslu á vegum Vöku-Helgafells en Orðabók Háskóla Íslands annaðist orðfræðilega greiningu. Vefur - samskiptalausnir bjó orðstöðulykilinn í gagnagrunn til netútgáfu.

Orðstöðuykillinn hlaut styrk úr Menningarsjóði og Lýðveldissjóði og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn.