Bæta við glósu Skoða glósur

Ensk-íslenska orðabókin

Hér er komin verulega aukin og endurbætt útgáfa Ensk-íslenskrar skólaorðabókar sem kom fyrst út árið 1986. Við endurskoðunina var sérstök áhersla lögð á orðaforða á þeim sviðum þar sem mestar breytingar hafa orðið, svo sem í upplýsingatækni og viðskiptum, auk þess sem reynt var að gera daglegu máli sem best skil.

  • Endurbætt útgáfa hinnar geysivinsælu Ensk-íslensku skólaorðabókar frá 1986.
  • Hátt í 3000 nýjar þýðingar og merkingar auk fjölda nýrra skýringa og notkunardæma.
  • Sérstök áhersla á ný og mikilvæg þekkingarsvið, svo sem upplýsingatækni og viðskipti.
  • Fjöldi orða og orðasambanda úr daglegu máli samtímans.
  • Hátt í 40.000 uppflettiorð á 870 blaðsíðum.
  • Fleiri en 50.000 orðskýringar ásamt margvíslegum málfræðilegum upplýsingum og fróðleik um notkun, málsnið og merkingarsvið.
  • Orð sem eiga ekki beina samsvörun í íslensku skýrð á stuttan og hnitmiðaðan hátt.
  • Framburður gefinn á öllum uppflettiorðum með alþjóðlegu hljóðritunarkerfi.

Höfundar eru Jón Skaptason, ritstjóri, Dóra Hafsteinsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Ingrid Markan, Sigríður Harðardóttir, Þórunn Hafstein. Að endurbættri útgáfu unnu Ingrid Markan (ritstjórn), Jón Skaptason og Pétur Knútsson Ridgewell (hljóðritun).

Hér má finna bókina til sölu hjá Forlaginu

Ensk-íslenska orðabókin