Bæta við glósu Skoða glósur

Nöfn Íslendinga

Nöfn Íslendinga er jöfnum höndum fræðirit og uppflettirit um þau nöfn sem Íslendingar hafa borið frá því manntal var fyrst tekið árið 1703 og allt fram til ársins 1990. Getið er um uppruna nafnanna og merkingu, aldur þeirra og tíðni, m.a. hve algeng þau eru sem fyrra og seinna nafn, svo og sitthvað annað til fróðleiks og skemmtunar. Einnig er sýnd beyging allra nafnanna. Bókin er byggð á traustum fræðilegum grunni, enda hafa höfundar hennar, dr. Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Háskólans, og Sigurður Jónsson frá Arnarvatni cand. mag., fengist við rannsóknir á nöfnum Íslendinga um árabil.

Nöfn Íslendinga