Bæta við glósu Skoða glósur

Íslensk orðabók

Íslensk orðabók byggir á langri hefð. Menningarsjóður ákvað árið 1957 að hefja vinnu við íslenska orðabók og hún leit dagsins ljós árið 1963 í ritstjórn Árna Böðvarssonar. Önnur útgáfa kom út 1983 og sú þriðja, nú í ritstjórn Marðar Árnasonar, árið 2002. Þriðja útgáfa var mikið aukin og endurbætt og á hennar grunni kom út fjórða útgáfa árið 2007 með allnokkrum viðbótum og leiðréttingum.

Í tölvutækri gerð Íslenskrar orðabókar má leita í ríflega 100.000 leitarhæfum uppflettiorðum. Glögg uppsetning greiðir aðgang að lýsingu orðanna og finna má fjölbreyttar og skýrar leiðbeiningar um málsnið og málnotkun. Íslensk orðabók á tölvutæku formi býður sömuleiðis upp á fjölda leiða til að fletta upp orðum, orðhlutum, merkingum o.fl.

Íslensk orðabók er gagnabanki og leiðarvísir um íslenska tungu og endurspeglar samhengið í móðurmálinu frá eddukvæðum til tölvutækni. Hún er ómissandi hjálpargagn við nám og störf og á erindi við alla sem tala íslensku.

Hér má finna bókina til sölu hjá Forlaginu

Íslensk orðabók