Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
Gagnasafnið Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN), sem unnið er hjá Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum (Orðabók Háskólans), er tengt við textaleit Snöru og þess vegna er hægt að leita
að hvaða beygingarmynd sem er.
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN) er safn beygingardæma á tölvutæku formi sem er grunnur að
ýmiss konar tungutækniverkefnum en jafnframt er efnið birt á
vefsetri Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
og gagnast þar með almennum notendum. Vinna við BíN hófst árið 2002 hjá Orðabók Háskólans.
Sjá nánar hér.
Aðgangur að Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls er öllum opinn.